Ársreikningur RARIK fyrir árið 2014

Hagnaður RARIK á árinu var 2,7 milljarðar.


Samkvæmt rekstrarreikningi var hagnaður á árinu 2.661 milljónir króna sem er töluvert umfram það sem gert var ráð fyrir í áætlunum. Hækkun frá árinu 2013 var tæp 37% en þá var hagnaður ársins 1.947 milljónir króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 4.719 milljónir króna eða 37,7% af veltu tímabilsins, samanborið við 36,5% á árinu 2013. Handbært fé frá rekstri var 3.837 milljónir króna.

Rekstrartekjur hækkuðu um rúm 6% frá árinu 2013 og voru 12.521 milljónir króna og rekstrargjöld hækkuðu á milli ára um tæp 4,5% og voru 9.513 milljónir króna.

Rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á árinu 2014 var 3.008 milljónir króna sem er rúmlega 12% hækkun frá fyrra ári. Styrking krónunnar og lítil verðbólga gerði það að verkum að fjármagnsliðir voru hagstæðari en búist var við. Fjármagnsgjöld umfram fjármagnstekjur voru um 748 milljónir króna, en á árinu 2013 var niðurstaðan um 867 milljónir króna. Hagnaður var því meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir.

Áhrif Landsnets, sem er hlutdeildarfélag RARIK, á afkomu ársins voru jákvæð um 847 milljónir króna á móti 491 milljónum á árinu 2013.

Samkvæmt efnahagsreikningi námu heildareignir RARIK í árslok 48.536 milljónum króna og hækkuðu um 1.749 milljónir króna á milli ára. Heildarskuldir námu 19.041 milljónum króna og lækkuðu um 602 milljónir króna frá fyrra ári. Eigið fé var 29.495 milljónir króna og er eiginfjárhlutfall því 61% samanborið við 58% í árslok 2013. Fjárfestingar ársins voru 2.572 milljónir króna, sem er um 1.200 milljónum króna lægri fjárhæð en árið á undan. Skýrist það fyrst og fremst af mjög miklum fjárfestingum við hitaveitu á Skagaströnd og við rafvæðingu fiskimjölsverksmiðja á árinu 2013.

Stjórn RARIK ohf. leggur til við aðalfund að greiddar verði 310 milljónir króna í arð til ríkissjóðs.

Samstæðuársreikningur RARIK ohf. er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. 

Horfur í rekstri RARIK á árinu 2015 eru góðar, en þó er gert ráð fyrir að hagnaður ársins verði heldur lægri en á árinu 2014. Áætlanir ársins 2015 gera ráð fyrir að forgangsorka aukist frá fyrra ári, en að dreifing raforku standi í stað.  

Vextir erlendra lána hafa verið hagstæðir undanfarin misseri og gert er ráð fyrir að þeir haldist sambærilegir út árið 2015. Samkvæmt áætlunum RARIK er gert ráð fyrir að taka lán á árinu 2015 að fjárhæð 5,5 milljarðar króna. Hluti lántökunnar eða um 3,5 milljarðar eru vegna endurfjármögnunar. Miðað er við að lántakan verði frágengin fyrir mitt árið.

Gert er ráð fyrir að fjárfestingar samstæðunnar verði sambærilegar og á síðasta ári.

 

 

Helstu stærðir samstæðureiknings RARIK, allar fjárhæðir í milljónum króna.

 

  Helstu stærðir úr rekstri:                          
    jan-des   jan-des   jan-des   jan-des   jan-des   jan-des   jan-des
    2014   2013   2012   2011   2010   2009   2008
                             
Rekstartekjur 12.521   11.793   11.412   10.768   9.694   8.703   7.830
Rekstrargjöld 9.513   9.108   8.428   8.547   7.907   6.973   6.851
Rekstrarhagnaður 3.008   2.684   2.984   2.221   1.787   1.731   979
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) -748   -867   -1.282   -1.233   56   -1.804   -5.645
Áhrif hlutdeildarfélags 847   491   180   189   802   331   -2.877
Hagnaður/tap  fyrir skatta 3.107   2.309   1.882   1.177   2.646   257   -7.543
Tekjuskattur -446   -362   -341   -164   -127   440   310
Hagnaður (Tap) 2.661   1.947   1.541   1.014   2.518   697   -7.232
                             
Eignir samtals 48.536   46.787   44.569   37.262   37.032   35.663   31.923
Eigið fé   29.495   27.144   25.507   19.327   18.314   15.982   13.942
Skuldir   19.041   19.643   19.062   17.935   18.718   19.682   17.982
                             
Handbært fé frá rekstri 3.837   3.541   3.257   2.779   2.067   1.847   1.150
Greidd vaxtagjöld 649   657   630   623   842   749   901
                             
EBITDA   4.719   4.300   4.351   3.520   3.054   2.843   1.884
Vaxtaþekja 7,27   6,54   6,91   5,65   3,63   3,80   2,09
Eiginfjárhlutfall 60,8%   58,0%   57,2%   51,9%   49,5%   44,8%   43,7%

 

 

 

 

Ársreikningur RARIK 2014 var samþykktur á fundi stjórnar þann 5. mars, 2015 og heimilaði stjórn birtingu hans í Kauphöll Íslands.

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma 528-9000.


Attachments

Ársreikningur samstæðu Rarik 2014.pdf RA-55770 - Fréttatilkynning til Kauphallar Íslands - Ársreikningur RARIK fyrir árið 2014.pdf
GlobeNewswire