Fjarskipti hf. hefur borist krafa frá Símanum um skaðabætur vegna meintrar ólögmætrar notkunar á vörumerkinu Tímaflakk. Krafan er að fjárhæð 400 milljónir króna. Fjarskipti hf. telja ekki grundvöll fyrir kröfunni. Ágreiningur er um skráningu Símans á vörumerkinu sem ekki hefur verið til lykta leiddur. Fyrir liggur nýlegur úrskurður Einkaleyfastofu, frá 12. febrúar 2015, sem kveður á um að skráning Símans á orðmerkinu Tímaflakk skuli halda gildi sínu. Fjarskipti hf. hafa ákveðið að bera úrskurðinn undir áfrýjunarnefnd í vörumerkjamálum. Auk þess telur Fjarskipti hf. fjárhæð bótakröfunnar í engu samræmi við málsatvik og dómafordæmi.
Recommended Reading
-
Í tilefni af því að fjölmiðlar hafa fjallað um málshöfðun Gavia Invest ehf á hendur Heiðari Guðjónssyn og Úrsus ehf, félagi í eigu fyrrum forstjóra Sýnar, vegna viðskipta með hlutabréf í Sýn á árinu...
Read More -
Sýn hefur ákveðið að hætta framleiðslu og útsendingu sjónvarpsfrétta frá og með 1. september 2026. Síðasti sjónvarpsfréttatíminn verður sendur út í kvöld á SÝN. Jafnframt verður hætt framleiðslu og...
Read More