Nasdaq Iceland áminnir Kópavogsbæ opinberlega


Viðurlaganefnd Nasdaq Iceland („Kauphöllin“)* hefur komist að þeirri niðurstöðu að áminna beri Kópavogsbæ („útgefandi“) opinberlega vegna atvika þar sem útgefandi er talinn hafa brotið gegn reglum fyrir útgefendur fjármálagerninga („reglurnar“). Taldi Viðurlaganefnd útgefanda hafa brotið gegn ákvæðum 4.1.2, 4.2.1, 4.1.4 og 4.1.3 í reglunum með eftirfarandi háttsemi:

 

Samþykkt bæjarstórnar Kópavogs um húsnæðismál var tekin 14. janúar 2014. Fól hún í sér að skuldir Kópavogsbæjar gátu hækkað um 7-9% frá gildandi áætlunum sveitarfélagsins. Að mati Viðurlaganefndar var Kópavogsbæ skylt að birta þessar upplýsingar. Meðal annars var fjallað um ákvörðunina í frétt sem birtist á vefmiðlinum mbl.is hinn 14. janúar 2014, kl. 22.54. Það var ekki fyrr en hinn 15. janúar 2014, kl. 13.39, að Kópavogsbær birti fyrst opinberlega tilkynningu vegna bæjarstjórnarfundarins 14. janúar 2014 og vakti athygli á samþykkt bæjarstjórnar um húsnæðismál. Við mat á því hvort upplýsingarnar hefðu birst „án tafar eða eins fljótt og unnt er“ í skilningi ákvæðis 4.1.4 í reglunum taldi Viðurlaganefndin að það yrði að játa útgefanda ákveðið svigrúm til að meta hvort upplýsingarnar væru þess eðlis að upplýsingaskyldan næði til þeirra. Fyrir hefði legið að upplýsingar um samþykkt bæjarstjórnar birtust ekki fyrr en rúmum fjórum klukkustundum eftir opnun markaða daginn eftir. Að mati Viðurlaganefndar yrði að líta svo á að upplýsingarnar hefðu ekki verið birtar „án tafar eða eins fljótt og unnt er“ í skilningi ákvæðisins.

 

Að mati Viðurlaganefndar hefði útgefandi ákveðið svigrúm til að meta hvort upplýsingar væru þess eðlis að upplýsingaskyldan næði til þeirra. Engu að síður yrði að gera þá kröfu til útgefanda að viðeigandi verkferlar væru til staðar svo þetta mat gæti farið fram innan eðlilegra tímamarka.

 

Samkvæmt framansögðu taldi Viðurlaganefnd að útgefandi hefði gerst brotlegur við ákvæði 4.1.2, 4.2.1 og 4.1.4 reglnanna. Einnig taldi Viðurlaganefnd að jafnræði fjárfesta hefði verið raskað þar sem samþykkt bæjarstórnar Kópavogs um húsnæðismál hefði verið tekin á opnum fundi og upplýsingar um hana birtar samdægurs í fjölmiðlum daginn áður en útgefandi birti opinberlega tilkynningu sama efnis. Kópavogsbær teldist því hafa gerst brotlegur við ákvæði 4.1.3 reglnanna.

 

Með vísan til framanritaðs þótti Viðurlaganefnd rétt að áminna Kópavogsbæ opinberlega fyrir ofangreind brot á reglum Kauphallarinnar. Ákvörðun um opinbera áminningu var tekin á grundvelli samnings við Kauphöllina um töku verðbréfa útgefanda til viðskipta í Kauphöllinni, sbr. ákvæði 8.3 í reglunum. Í 4. tölul. ákvæðisins segir meðal annars að vegna brota útgefanda á reglum Kauphallarinnar sé Kauphöllinni heimilt að birta opinbera yfirlýsingu varðandi umrætt mál.

 

Ítarlegri lýsingu á málavöxtum og ákvörðun Viðurlaganefndar má finna í viðhengi.

 

 

Um Viðurlaganefndina

 

Viðurlaganefnd NASDAQ OMX Iceland hf. tekur til meðferðar og ákvarðar um viss mál vegna brota á reglum eins og skilgreint er í reglum fyrir útgefendur fjármálagerninga í Kauphöllinni, reglum First North Nordic (e. First North Nordic Rulebook), reglum um First North markaðinn fyrir skuldabréf (e. First North Iceland Fixed Income Rulebook) og aðildarreglum NASDAQ OMX Nordic (e. Nordic Member Rules).

 

Viðurlaganefndin, sem skipuð er af stjórn NASDAQ OMX Iceland hf, samanstendur af þremur óháðum sérfræðingum;  Eyvindi G. Gunnarssyni, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands (formaður), Halldóri Björnssyni, héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur (varaformaður) og Katrínu Ólafsdóttur, PhD í hagfræði og lektor við Háskólann í Reykjavík.

 

*Nasdaq Iceland er vörumerkið fyrir NASDAQ OMX Iceland hf.


Attachments

Ákvörðun mál 2-2014.pdf
GlobeNewswire