Flutningatölur júlí 2015


Í júlí flutti félagið 415 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 17% fleiri en í júlí á síðasta ári. Farþegafjöldinn er sá mesti í einum mánuði frá stofnun félagsins. Sætanýtingin var 88,9% og jókst um 3,2 prósentustig milli ára og hefur aldrei verið hærri í júlí áður.  Framboðsaukning á milli ára nam 14%.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 33 þúsund í júlí. Framboð félagsins var dregið saman um 5% samanborið við 2014. Sætanýting nam 77,4% og jókst um 5,1 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 21% á milli ára.  Fraktflutningar jukust um 3% frá því á síðasta ári. Fjöldi seldra gistinótta á hótelum félagsins jókst um 5% á milli ára. Herbergjanýting var 90,4% samanborið við 89,1% í júlí í fyrra.

   

MILLILANDAFLUG JÚL 15 JÚL 14 BR. (%) ÁTÞ 15 ÁTÞ 14 BR. (%)
Fjöldi farþega 414.678 354.724 17% 1.714.865 1.458.015 18%
Sætanýting 88,9% 85,7% 3,2 %-stig 82,9% 79,7% 3,2 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 1.395,6 1.226,2 14% 6.180,1 5.430,4 14%
             
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG JÚL 15 JÚL 14 BR. (%) ÁTÞ 15 ÁTÞ 14 BR. (%)
Fjöldi farþega 33.492 32.386 3% 171.473 171.035 0%
Sætanýting 77,4% 72,3% 5,1 %-stig 73,0% 70,6% 2,4 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 20,1 21,1 -5% 85,0 86,5 -2%
             
LEIGUFLUG JÚL 15 JÚL 14 BR. (%) ÁTÞ 15 ÁTÞ 14 BR. (%)
Flugvélanýting 100,0% 90,6% 9,4 %stig 98,1% 90,9% 7,2 %-stig
Seldir blokktímar 2.180 1.796 21% 13.235 12.460 6%
             
FRAKTFLUTNINGAR JÚL 15 JÚL 14 BR. (%) ÁTÞ 15 ÁTÞ 14 BR. (%)
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 27.099 24.043 13% 138.522 122.564 13%
Seldir tonnkm. (FTK´000) 8.349 8.117 3% 57.460 57.105 1%
             
HÓTEL JÚL 15 JÚL 14 BR. (%) ÁTÞ 15 ÁTÞ 14 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 42.842 41.540 3% 192.939 189.793 2%
Seldar gistinætur 38.743 37.023 5% 153.105 144.023 6%
Herbergjanýting 90,4% 89,1% 1,3 %-stig 79,4% 75,9% 3,5 %-stig

 

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010


Attachments

Traffic Data - July.pdf