NASDAQ SETUR Á LAGGIRNAR FIRST NORTH 25 VÍSITÖLU


Reykjavík, 1. október, 2015 — Nasdaq (Nasdaq: NDAQ) tilkynnir í dag um nýja vísitölu, First North 25, sem er vísitala þeirra 25 félaga sem eru stærst og mest er átt viðskipti með á Nasdaq First North og Nasdaq  First North Premier. First North 25 vísitalan verður sett á laggirnar og henni dreift frá og með 15. október, 2015. Vísitalan er mikilvæg viðbót í áframhaldandi viðleitni Nasdaq við að vera leiðandi viðskiptavettvangur fyrir fyrirtæki í vexti

„Að styðja við smá og meðalstór fyrirtæki er grundvallarþáttur í starfi okkar hjá Nasdaq”, sagði Páll Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland. "Með því að bjóða upp á First North 25 vísitöluna vekjum við athygli á auknum fjárfestingartækifærum á Nasdaq First North fyrir stærri hóp fjárfesta og með auknum sýnileika fyrirtækja í vísitölunni. Það er okkar von að nýja vísitalan verði hvatning fyrir núverandi félög á First North Iceland en ekki síður fyrir önnur félög til að nýta sér markaðinn sem fjármögnunarvettvang.“

Val á þeim 25 félögum sem eru í First North 25 fer fram í tveimur skrefum. Fyrst eru fundin 30 stærstu félögin eftir markaðsvirði og síðan eru 25 þeirra sem mest er átt viðskipti með valin í vísitöluna, en þar er litið til samanlagðar heildarfjárhæðar viðskipta yfir sex mánaða tímabil. First North 25 vísitalan er endurskoðuð tvisvar á ári og tekur ný samsetning gildi á fyrsta viðskiptadegi í janúar og júlí.

Á sama tíma og First North 25 vísitalan verður kynnt, koma til sögunnar fjórar nýjar landsvísitölur á norrænu  mörkuðunum; First North  Sweden, First North Finland, First North Denmark og First North Iceland. Þessar fjórar vísitölur munu innihalda hlutabréf sem átt er viðskipti með á hverjum markaði fyrir sig og er ætlað að auka sýnileika Nasdaq First North á Norðurlöndunum.

„Síðan að Nasdaq First North markaðurinn kom fyrst til sögunnar árið 2005 hefur hann vaxið mikið og þjónað vel smærri fyrirtækjum og fjárfestum á Norðurlöndunum”, segir Páll Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland. Nasdaq First North markaðurinn á Íslandi hefur alla burði til að verða eins blómlegur markaður og annarsstaðar, enda mörg góð fyrirtæki hér sem bæði þurfa fjármagn og geta eflaust gert mjög vel á markaði. Rannsóknir sýna að flest ný störf verða til í smáum og meðalstórum fyrirtækjum og fjölgar mikið eftir skráningu. Það er því beinlínis nauðsynlegt fyrir efnahagslífið að veita þessum félögum sýnileika og góðan vettvang til að fjármagna sig á.”

Vísitölurnar munu verða settar á laggirnar og þeim dreift frá  og með 15.október, 2015. Nákvæm lýsing á aðferðarfræði við val í nýju vísitölurnar má finna hér.

#

 

Um Nasdaq

Nasdaq  (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,600 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 9.6 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland, Nasdaq Riga, Nasdaq Stockholm, Nasdaq Tallin, Nasdaq Vilnius, Nasdaq Clearing og Nasdaq Broker Services eru vörumerkin fyrir Nasdaq OMX Copenhagen A/S, Nasdaq OMX Helsinki Ltd., Nasdaq OMX Iceland hf., Nasdaq OMX Riga, AS, Nasdaq OMX Stockholm AB, Nasdaq OMX Tallinn AS, Nasdaq OMX Vilnius, Nasdaq OMX Clearing AB, Nasdaq OMX Broker Services AB. Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. Nasdaq Baltic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Tallinn, Nasdaq Riga og Nasdaq Vilnius. 

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur. 

         Fjölmiðlar:
         Kristín Jóhannsdóttir
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com
         868 9836


Attachments

2015_1001_FN25_pressrelease_Icelandic.pdf
GlobeNewswire