Síminn hf. birtir uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung 2015 fimmtudaginn 29. október næstkomandi.
Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn föstudaginn 30. október 2015 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30. Morgunverður í boði frá kl. 8:00.
Á fundinum mun Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Símans www.siminn.is/siminn/fjarfestar/ og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.