Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2016 og næstu þrjú ár


Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2016 og næstu þrjú ár þar á eftir var lögð fram í bæjarráði Mosfellsbæjar í morgun. Bæjarráð vísaði áætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn 4. nóvember nk.

Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir að tekjur nemi 8.762 millj. kr., gjöld fyrir fjármagnsliði nemi 7.927 millj. kr. og fjármagnsliðir 696 m.kr.

Áætlunin gerir ráð fyrir að rekstrarafgangur verði 139 m.kr. Áætlað er að framkvæmdir nemi 613 millj. kr. Gert er ráð fyrir að íbúum fjölgi um 3,4% milli ára.

Helstu kennitölur í rekstri eru að framlegð er 13,5% og veltufé frá rekstri er 10,2%.  Skuldaviðmið skv. sveitastjórnarlögum er áætlað 116,0% í árslok 2016.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Sverrisson bæjarstjóri í síma 525 6700.

 

Aldís Stefánsdóttir, forstöðumaður þjónustu- og samskiptadeildar

s.691-1254, aldis@mos.is.


Attachments

Fjárhagsáætlun 2016 - 2019 fyrir bæjarráð 29okt15.pdf