Í 46. viku 2015 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 1.968.133 eigin hluti fyrir 45,9 m.kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu TM eftir viðskipti |
10.11.2015 | 09:42 | 15.214 | 23,30 | 354.486 | 16.220.106 |
10.11.2015 | 13:54 | 33.000 | 23,55 | 777.150 | 16.253.106 |
10.11.2015 | 13:55 | 160.000 | 23,55 | 3.768.000 | 16.413.106 |
10.11.2015 | 13:55 | 431.089 | 23,55 | 10.152.146 | 16.844.195 |
11.11.2015 | 10:26 | 639.303 | 23,40 | 14.959.690 | 17.483.498 |
12.11.2015 | 09:48 | 639.303 | 23,00 | 14.703.969 | 18.122.801 |
13.11.2015 | 11:05 | 9.950 | 23,40 | 232.830 | 18.132.751 |
13.11.2015 | 15:03 | 27.054 | 23,55 | 637.122 | 18.159.805 |
13.11.2015 | 15:23 | 13.220 | 23,55 | 311.331 | 18.173.025 |
Samtals | 1.968.133 | 45.896.724 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. september 2015, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.
TM hefur nú keypt samtals 18.173.025 hluti í félaginu sem samsvarar 58,6% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 400,3 milljónum króna. TM á nú samtals 2,5% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 31.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en 31. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Viðarsson, forstjóri
s: 515-2609
sigurdur@tm.is