Eik fasteignafélag hf. mun birta uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung fimmtudaginn 26. nóvember, eftir lokun markaða.
Opinn kynningarfundur verður haldinn mánudaginn 30. nóvember 2015 klukkan 08:30 á 20. hæð í Turninum, Smáratorgi 3, Kópavogi.
Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, mun kynna uppgjörið og fara yfir sýn stjórnenda og breytingar á fasteignamarkaðinum. Í kjölfarið mun hann ásamt Kolbeini Friðrikssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs, svara spurningum.
Nánari upplýsingar veitir Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200 / 861-3027.