Niðurstaða skuldabréfaútboðs - RARIK 1512 35


Þann 9. desember 2015 hélt RARIK ohf. útboð á nýjum skuldabréfaflokki með auðkennið RARIK 1512 35 og var stefnt að útgáfu allt að 7.000.000.000 króna að nafnvirði. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 15. desember  2015.

Heildareftirspurn í útboðinu var góð en alls bárust tilboð að nafnvirði 10.620.000.000 króna. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 7.660.000.000,- króna á ávöxtunarkröfunni 3,25%.

Skuldabréfaflokkurinn RARIK 1512 35 verður gefinn út rafrænt hjá Nasdaq Verðbréfamiðstöð hf. þriðjudaginn 15. desember 2015. Skuldabréfin eru til 20 ára og eru með jöfnum afborgunum, verðtryggð með vísitölu neysluverðs.

Í samræmi við skilmála verða skuldabréfin tekin til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. fyrir 14. júní 2016.

Íslandsbanki hefur umsjón með útgáfu og útboði skuldabréfanna.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Tryggvi Þór Haraldsson forstjóri

Sími: 528-9000

GlobeNewswire