Marel hefur í dag gengið formlega frá kaupum á MPS Meat Processing systems (MPS).
Þann 21. nóvember sl. sendi Marel frá sér tilkynningu um að félagið hefði samþykkt kaup á MPS fyrir 382 milljónir evra. Kaupin voru gerð með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda sem hefur nú fengist án athugasemda. Þar af leiðandi var gengið frá kaupunum í dag, 29. janúar 2016.
Hagstæð langtímafjármögnun tryggð
Eins og tilkynnt var þann 21. nóvember 2015, gekk Marel frá hagstæðri langtímafjármögnun til 5 ára fyrir félagið í heild, samhliða kaupunum á MPS. Heildarlánsfjárhæðin nemur um 670 milljónum evra og taka skilmálar og vaxtakjör lánanna hliðsjón af núverandi markaðsaðstæðum. Lánin eru að öllu leyti hefðbundin (e. senior). Fjármögnunin hefur nú leyst af hólmi fyrri fjármögnun, sem var blanda af hefðbundnum (e. senior) og greiðsluvíkjandi (e. junior) lánum, og er leidd af ABN Amro, ING og Rabobank (e. Bookrunning Mandated Lead Arrangers). Fjármögnunin samanstendur af 343 milljóna evru láni, 105 milljóna Bandaríkjadala láni og 225 milljóna evra ádráttarláni (e. revolver). Gjalddagi lánanna er í nóvember 2020. Vaxtaálagið er EURIBOR/LIBOR + 275 bps sem mun breytast í takt við skuldsetningarhlutfall félagsins.
Fjármögnunin eykur fjárhagslegan sveigjanleika félagsins og mun styðja við vöxt þess og framgang. Fjárhagsleg staða Marel verður sterk eftir sem áður og áætlað skuldahlutfall er innan þeirra marka sem langtímastefna félagsins kveður á um.
Hluthafar MPS, þeirra á meðal stjórnendur MPS, munu í tengslum við kaupin nota hluta kaupverðsins til fjárfestingar í Marel eða sem nemur um 16 milljónum evra. Samkvæmt samkomulagi kaupa þeir 10,8 milljón hluti í Marel á genginu 213 kr. á hlut og skuldbinda þeir sig til að eiga hlutina í 18 mánuði frá kaupunum hið minnsta.
Marel býður nú upp á heildarlausnir í kjöti
Marel og MPS munu í sameiningu vera í fararbroddi í þróun og sölu á heildarlausnum til kjötframleiðenda. Félögin eiga vel saman og skörun í vörulínum félaganna er afar takmörkuð. Þá fellur alþjóðleg starfsemi beggja félaganna vel saman sem skapar grundvöll fyrir áframhaldandi vöxt og arðsemi.
MPS er leiðandi á heimsvísu í framleiðslu og þróun búnaðar til frumvinnslu á kjöti. Undir forystu styrkra stjórnenda hefur félagið vaxið og hagnast vel á síðustu misserum. Samkvæmt óendurskoðuðum reikningum MPS voru tekjur og EBITDA félagsins fyrir árið 2015 ívið hærri en þær áætluðu tölur sem birtar voru í tilkynningu Marel þann 21. nóvember sl. MPS hefur yfir að ráða öflugu alþjóðlegu neti sölu- og þjónustueininga sem sinna fjölbreyttum viðskiptahópi um allan heim.
Með kaupunum styrkir Marel stöðu sína sem leiðandi framleiðandi á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á kjúklingi, kjöti, og fiski. Kaupin eru að fullu í samræmi við áður kynnta stefnu Marel um frekari vöxt og aukna arðsemi félagsins til frambúðar. Kaupin styðja við framboð Marel á heildarlausnum í kjötvinnslu og ýta einnig undir jafnari tekjuskiptingu, bæði á milli mismunandi iðnaða og markaðssvæða. Í sameinuðu félagi er áætlað að kjötiðnaður muni skila um það bil 30% af heildartekjum og EBITDA á ársgrundvelli.
Ráðgjafakostnaður Marel í tengslum við kaupin á MPS nemur 3,3 milljónum evra og er að fullu gjaldfærður í fjórða ársfjórðungi 2015. Kaupin og ný langtímafjármögnun félagsins verða kynnt frekar á kynningarfundi fimmtudaginn 4. febrúar nk. kl. 8:30, þar sem uppgjör félagsins fyrir árið 2015 verður jafnframt kynnt.