Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing – Innborgun á höfuðstól og greiðsla vaxtaauka


Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu VEDS1 14 01 hefur útgefandi ákveðið að nýta sér heimild til að greiða inná höfuðstól skuldabréfsins á næsta vaxtagjalddaga sem er þann 15. febrúar næstkomandi. Sjóðurinn mun því mánudaginn 15. febrúar greiða alls 270.000.000,- króna inn á höfuðstól bréfsins. Greiðslan er tilkomin vegna afborgana af og uppgreiðslu á skuldabréfum í eigu sjóðsins síðustu vikur og mánuði.

Þá mun útgefandi með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu VEDS1 14 01 jafnframt greiða vaxtaauka vegna ársins 2015 mánudaginn 15. febrúar næstkomandi, samtals krónur 95.000.000.

Nánari upplýsingar veitir Rekstrarfélag Virðingar hf. sem er rekstraraðili útgefanda í síma 5856500