Samkvæmt rekstrarreikningi nam hagnaður ársins 2.220 milljónum króna sem er heldur meira en áætlanir gerðu ráð fyrir, en lækkaði um 17% frá árinu 2014 þegar hagnaður ársins nam 2.661 milljón króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 4.151 milljón króna eða 31,3% af veltu ársins, samanborið við 37,7% á árinu 2014. Handbært fé frá rekstri nam 3.587 milljónum króna.
Rekstrartekjur hækkuðu um 5,8% frá árinu 2014 og námu 13.252 milljónum króna og rekstrargjöld hækkuðu á milli ára um 13% og námu 10.755 milljónum króna.
Rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á árinu 2015 nam 2.497 milljónum króna sem er tæplega 17% lækkun frá fyrra ári. Styrking krónunnar og lág verðbólga gerði það að verkum að fjármagnsliðir voru hagstæðari en áætlað var. Hagnaður var því meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Fjármagnsgjöld umfram fjármagnstekjur námu um 850 milljónum króna, en á árinu 2014 námu þau 748 milljónum króna. Hlutdeild í hagnaði Landsnets hf., hlutdeildarfélags RARIK, sem færð er í rekstrarreikning nam 903 milljónum króna á móti 847 milljónum á árinu 2014. Vegna hlutdeildar í endurmati fastafjármuna Landsnets að fjárhæð 4.218 milljónum króna sem færð er á eigið fé, nam heildarhagnaður ársins 2015 því 6.438 milljónum króna.
Samkvæmt efnahagsreikningi námu heildareignir RARIK í árslok 57.751 milljón króna og hækkuðu um 9.215 milljónir króna á milli ára. Heildarskuldir námu 22.114 milljónum króna og hækkuðu um 3.073 milljónir króna frá fyrra ári. Eigið fé var 35.637 milljónir króna og er eiginfjárhlutfall því 62% samanborið við 61% í árslok 2014. Fjárfestingar ársins að frádregnu söluandvirði seldra rekstrarfjármuna námu 2.432 milljónum króna, sem er heldur minna en áætlað var og um 137 milljónum króna lægri en árið á undan.
Stjórn RARIK ohf. leggur til við aðalfund að greiddar verði 350 milljónir króna í arð til eiganda RARIK sem er Ríkissjóður Íslands.
Samstæðuársreikningur RARIK ohf. er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.
Í desember 2015 var gefinn út skuldabréfaflokkur til 20 ára að fjárhæð 7.660 milljónir króna að undangengnu útboði sem Íslandsbanki hf. annaðist. Kjörin sem fengust í útboðinu voru hagstæð, en vextir erlendra lána hafa einnig verið hagstæðir undanfarin misseri og gert er ráð fyrir að þeir haldist sambærilegir út árið 2016. Samkvæmt áætlunum RARIK er gert ráð fyrir að taka erlent lán að fjárhæð um 3,5 milljarðar króna á árinu 2016 til fjármögnunar frekari fjárfestinga í lagningu jarðstrengja. Miðað er við að lántakan verði frágengin á fyrri helmingi ársins.
Horfur í rekstri RARIK á árinu 2016 eru góðar. Gert er ráð fyrir að hagnaður ársins verði heldur meiri en á árinu 2015 og að fjárfestingar samstæðunnar aukist á milli ára.
Helstu stærðir samstæðureiknings RARIK, allar fjárhæðir í milljónum króna.
| 2015 | 2014 | 2013 | 2012 | 2011 | 2010 | 2009 | |||||||
| Rekstartekjur | 13.252 | 12.521 | 11.793 | 11.412 | 10.768 | 9.694 | 8.703 | ||||||
| Rekstrargjöld | 10.755 | 9.513 | 9.108 | 8.428 | 8.547 | 7.907 | 6.973 | ||||||
| Rekstrarhagnaður | 2.497 | 3.008 | 2.684 | 2.984 | 2.221 | 1.787 | 1.731 | ||||||
| Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) | -850 | -748 | -867 | -1.282 | -1.233 | 56 | -1.804 | ||||||
| Áhrif hlutdeildarfélags | 903 | 847 | 491 | 180 | 189 | 802 | 331 | ||||||
| Hagnaður/tap fyrir skatta | 2.550 | 3.107 | 2.309 | 1.882 | 1.177 | 2.646 | 257 | ||||||
| Tekjuskattur | -330 | -446 | -362 | -341 | -164 | -127 | 440 | ||||||
| Hagnaður (Tap) | 2.220 | 2.661 | 1.947 | 1.541 | 1.014 | 2.518 | 697 | ||||||
| Eignir samtals | 57.751 | 48.536 | 46.787 | 44.569 | 37.262 | 37.032 | 35.663 | ||||||
| Eigið fé | 35.623 | 29.495 | 27.144 | 25.507 | 19.327 | 18.314 | 15.982 | ||||||
| Skuldir | 22.128 | 19.041 | 19.643 | 19.062 | 17.935 | 18.718 | 19.682 | ||||||
| Handbært fé frá rekstri | 3.587 | 3.837 | 3.541 | 3.257 | 2.779 | 2.067 | 1.847 | ||||||
| Greidd vaxtagjöld | 741 | 649 | 657 | 630 | 623 | 842 | 749 | ||||||
| EBITDA | 4.151 | 4.719 | 4.300 | 4.351 | 3.520 | 3.054 | 2.843 | ||||||
| Vaxtaþekja | 5,60 | 7,27 | 6,54 | 6,91 | 5,65 | 3,63 | 3,80 | ||||||
| Eiginfjárhlutfall | 61,7% | 60,8% | 58,0% | 57,2% | 51,9% | 49,5% | 44,8% |
Ársreikningur RARIK 2015 var samþykktur á fundi stjórnar þann 2. mars, 2016 og heimilaði stjórn birtingu hans í Kauphöll Íslands.
Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma 528-9000.