Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing – Ársreikningur fyrir árið 2015


Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing sem er í rekstri Rekstrarfélags Virðingar hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2014.

  • Hagnaður af rekstri sjóðsins nam 22,0 milljónum króna samkvæmt rekstrarreikningi á árinu 2015.
     
  • Hrein eign sjóðsins nam 95,6 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.
     
  • Árshlutareikningurinn var endurskoðaður af Rýni endurskoðun ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2015, efnahag hans 31. desember 2015 og breytingu á hreinni eign á árinu 2015, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða og að skýrsla stjórnar hafi að geyma þær upplýsingar, komi þær ekki fram annars staðar í ársreikningnum, sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga.

Nánari upplýsingar um árshlutareikning Veðskuldabréfasjóðsins Virðingar veitir starfsfólk Rekstrarfélags Virðingar í síma 5856500.


Attachments

Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing 2015 12 31.pdf