Landsbankinn hf.: Víxlaútboð


Landsbankinn mun halda lokað útboð á víxlum miðvikudaginn 3. ágúst 2016 kl. 15:00. Boðnir verða til sölu tveir víxlaflokkar, LBANK 170110 sem er þegar útgefinn flokkur á Nasdaq Iceland og nýr flokkur, LBANK 170210.

Verðbréfamiðlun Landsbankans hefur umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar í síma 410 7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.

HUG#2032525

GlobeNewswire