Landsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á tveimur víxlaflokkum, þegar útgefnum flokki, LBANK 170110 og nýjum flokki, LBANK 170210.
Heildartilboð í útboðinu námu 4.340 m. kr.
Tilboðum var tekið í flokki LBANK 170110 að fjárhæð 880 m. kr. á 6,49% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,3158 og í flokki LBANK 170210 að fjárhæð 920 m. kr. á 6,50% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 96,7846.
Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. ágúst 2016.
Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar.
HUG#2032998