TM mun birta uppgjör annars ársfjórðungs 2016 eftir lokun markaða þann 24. ágúst næst komandi.
TM býður til kynningarfundar á afkomu félagsins á öðrum ársfjórðungi fimmtudaginn 25. ágúst kl. 8:30. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum TM að Síðumúla 24. 4. hæð.
Árshlutareikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins www.tm.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað við upphaf kynningarfundar.
Hægt er að fylgjast með fundinum í gegnum vefinn á slóðinni: https://global.gotomeeting.com/join/626262373