Landsbankinn mun halda lokað útboð á víxlum mánudaginn 3. október 2016 kl. 15:00. Boðnir verða til sölu tveir víxlaflokkar, LBANK 170310 sem er þegar útgefinn flokkur á Nasdaq Iceland og nýr flokkur, LBANK 170410.
Verðbréfamiðlun Landsbankans hefur umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.