Alda Credit Fund slhf. : Fyrirhuguð stækkun skuldabréfaflokksins ACF 15 1


Fyrirhugað er að stækka skuldabréfaflokkinn ACF 15 1 sem gefin er út af Alda Credit Fund slhf. um kr. 2.720.000.000 að nafnverði. Eftir stækkun verður flokkurinn kr. 6.060.000.000 að nafnverði.

Skuldabréfin eru seld hluthöfum Alda Credit Fund slhf. í samræmi við fjárfestingarloforð.

Landsbankinn hf. hefur umsjón með stækkun flokksins.

Nánari upplýsingar veitir Þorkell Magnússon, framkvæmdastjóri Alda Credit Fund slhf., í síma 510-1090.