Fagfjárfestasjóðurinn ÍSH – Ársreikningur fyrir árið 2016


Fagfjárfestasjóðurinn ÍSH sem er í rekstri Rekstrarfélags Virðingar hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2016.

  • Hagnaður af rekstri sjóðsins nam 72 þúsundum króna samkvæmt rekstrarreikningi á árinu 2016.
     
  • Hrein eign sjóðsins nam 795 þúsundum króna samkvæmt efnahagsreikningi.
     
  • Ársreikningurinn var endurskoðaður af Rýni endurskoðun ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2016, efnahag hans 31. desember 2016 og breytingu á hreinni eign á árinu 2016, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða og að skýrsla stjórnar hafi að geyma þær upplýsingar, komi þær ekki fram annars staðar í ársreikningnum, sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga.

Nánari upplýsingar um ársreikning Fagfjárfestasjóðsins ÍSH veitir starfsfólk Rekstrarfélags Virðingar í síma 5856500.


Attachments

Fagfjárfestasjóðurinn ÍSH 2016.pdf