Íslandsbanki hefur gefið út Ársskýrslu og Áhættuskýrslu fyrir árið 2016. Í skýrslunum má finna áhugaverðar upplýsingar um starfsemi bankans og stefnu.
Áhættu- og Ársskýrsla Íslandsbanka 2016
Ársskýrsla 2016
Ársskýrsla Íslandsbanka er yfirgripsmikil samantekt um starfsemi bankans. Þar má sjá hvernig skýr stefna, framþróun og góður rekstur hefur skapað Íslandsbanka árangursríka aðgreiningu á bankamarkaði.
Góður árangur náðist í rekstri bankans á síðasta ári en bankinn var meðal annars valinn besti bankinn á Íslandi af bæði The Banker og Euromoney. Fjórða árið í röð eru viðskiptavinir bankans einnig þeir ánægðustu samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni .
Á síðasta ári kynnti bankinn framsæknar lausnir fyrir viðskiptavini sem einfalda þeim bankaviðskiptin. Má þar nefna greiðslumiðlunarappið Kass, sem á dögunum var valið besta appið á Íslandi, og netgreiðslumatið sem flýtir umsóknarferlinu um húsnæðislán.
Skýrslan fjallar einnig um stefnuáherslur bankans, sem eru margföldun, einföldun og heildun, hvernig þær styðja við framtíðarsýnina um að vera #1 í þjónustu og hafa áhrif á alla starfsemi bankans.
- Margföldun - leggur áherslu á að efla viðskiptatengsl við núverandi viðskiptavini og auka verðmætasköpun
- Einföldun - leggur áherslu á skilvirkni og hagkvæmni
- Heildun - leggur áherslu á að vera fyrirmynd í umhverfinu með stefnu bankans í samfélagslegri ábyrgð
Áhættuskýrsla 2016
Samhliða ársskýrslu er gefin út sérstök Áhættuskýrsla sem veitir markaðsaðilum upplýsingar sem ætlað er að auka skilning á áhættustýringu bankans, eiginfjárstöðu hans, sem og lausafjárstöðu. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að Íslandsbanki uppfyllti allar innri og ytri kröfur um áhættumörk á árinu 2016 og helst lausafjár- og eiginfjárstaða bankans sterk.
Öflugur hópur starfsmanna bankans kom að gerð þessara tveggja stóru ársrita en er það von bankans að þær veiti góða innsýn í rekstur bankans fyrir viðskiptavini og aðra hagaðila.
Hægt er að nálgast bæði Ársskýrslu og Áhættuskýrslu sem viðhengi, en einnig má finna allar fjárhagsupplýsingar á vef fjárfestatengsla Íslandsbanka, www.islandsbanki.is/ir.
Nánari upplýsingar veita:
- Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187.
- Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, edda.hermannsdottir@islandsbanki.is og í síma 440 4005.
http://www.globenewswire.com/NewsRoom/AttachmentNg/9588782e-343e-42f3-b16c-1de4c2e53974
Attachments:http://www.globenewswire.com/NewsRoom/AttachmentNg/4784a1e5-69b3-44db-8488-2fb4695bf23d
Attachments:http://www.globenewswire.com/NewsRoom/AttachmentNg/e6b6399c-ac11-4ef8-9967-2c8d7b8a27e4