Í viðleitni til þess að minnka samþjöppun á birtingu uppgjörsupplýsinga skráðra félaga hefur stjórn Skeljungs ákveðið að gera breytingar á fjárhagsdagatali sínu.
Nýjar dagsetningar eru sem hér segir;
Uppgjör 1. ársfjórðungs 2017: 8. maí 2017
Uppgjör 2. ársfjórðungs 2017: 28. ágúst 2017
Uppgjör 3. ársfjórðungs 2017: 30. október 2017
Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaða.
Vinsamlegast athugið að dagsetningarnar eru sem fyrr birtar með fyrirvara um breytingar.
Nánari upplýsingar veitir Valgeir M. Baldursson, forstjóri félagsins, s: 840-3022, tölvupóstur: vmb@skeljungur.is.