AAM GLEQ3 : Ársreikningur vegna ársins 2016


AAM GLEQ3 gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. á árinu 2016. Meðfylgjandi er ársreikningur 2016 fyrir fagfjárfestasjóðinn AAM GLEQ3.

  • Hagnaður sjóðsins á árinu 2016 nam 37 þús. kr. samkvæmt rekstrarreikningi.
  • Hrein eign sjóðsins nam 290 þús. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Ársreikningurinn var endurskoðaður af KPMG hf. Það er álit endurskoðanda að ársreikningur sjóðsins gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, fjárhagsstöðu hans 31.12.2016 og breytingu á handbæru fé á árinu 2016, í samræmi við lög um ársreikninga.

Nánari upplýsingar veitir Þorkell Magnússon, forstöðumaður skuldabréfa, ALDA sjóðir hf. í síma 510-1090.


Attachments

AAM GLEQ3 ársreikn 2016