Alda Credit Fund slhf. gaf út skuldabréfin ACF 15 1 sem tekin voru til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. á árinu 2016. Meðfylgjandi er ársreikningur 2016:
- Hagnaður félagsins á árinu 2016 nam 68,7 m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi.
- Heildareignir námu 7.745 mkr. samkvæmt efnahagsreikningi.
- Eigið fé nam 1.607 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi
- Ársreikningurinn var endurskoðaður af KPMG hf. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins á tímabilinu, fjárhagsstöðu þess 31.12.2016 og breytingu á handbæru fé á árinu 2016, í samræmi við lög um ársreikninga.
Nánari upplýsingar veitir Þorkell Magnússon, framkvæmdastjóri Alda Credit Fund slhf. í síma 510-1090.