Lýsing hefur lokið útboði á sex mánaða víxlum í nýjum flokki, LYSING 171016, að fjárhæð 500 m.kr.
Heildareftirspurn í útboðinu nam 1.180 m.kr.
Víxlarnir voru seldir á 5,72% flötum vöxtum. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er föstudagurinn 7. apríl 2017.
Markaðsviðskipti Arctica Finance hf. höfðu umsjón með útboðinu.
Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 7. apríl 2017.
Nánari upplýsingar veita:
Daði Kristjánsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., dadi@arctica.is, s:840 4145
Arnar Geir Sæmundsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., arnar@arctica.is, s:896 6566
Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lýsingar hf., sighvatur@lysing.is, s:540 1700