FAST-1 slhf. - Aðalfundur


Aðalfundur FAST-1 slhf.

Aðalfundur FAST-1 slhf. verður haldinn þann 25. apríl 2017 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, 101 Reykjavík. Salur 4. Boðið verður upp á léttar veitingar að fundi loknum.

Fundurinn hefst kl. 10:30.

Dagskrá aðalfundarins er eftirfarandi:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Ársreikningur félagsins lagður fram til samþykktar
  3. Ákvörðun um arðgreiðslu
  4. Ákvörðun um greiðslu stjórnarlauna
  5. Tillaga að breytingum á samþykktum félagsins
  6.  Kosning í stjórn félagsins
  7. Kosning endurskoðunarfélags fyrir félagið
  8. Tillaga stjórnar um reglur um mat á fjárfestingarkostum félagsins
  9. Tillaga stjórnar um reglur um sölu eignasafns, ráðstöfun söluandvirðis og starfstíma félagsins
  10. Tillaga um starfskjarastefnu, ef við á, sbr. 79. gr. a laga um hlutafélög
  11. Önnur mál

Tilnefningar og framboð til stjórnar félagsins munu liggja fyrir á skrifstofu félagsins með lögbundnum fyrirvara.

Ársreikningur félagsins er birtur á vefsíðu félagsins: www.fast1.co.is. Hluthafar geta nálgast gögn vegna aðalfundar á skrifstofu félagsins að Katrínartúni 2, 105 Reykjavík, á skrifstofutíma alla virka daga.

Fundurinn mun fara fram á íslensku og eru fundargögnin á íslensku.

GlobeNewswire