Á aðalfundi Símans hf. þann 16. mars 2017 var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins til jöfnunar á eigin hlutum. Lækkunin nemur kr. 205.798.258 að nafnverði, eða sem nemur jafn mörgum hlutum. Eftir lækkun er hlutafé félagsins kr. 9.444.201.742, sem skiptist í jafn marga hluti, hvern að nafnverði kr. ein króna.
Lækkun hlutafjár hefur ekki áhrif á hlutafé annarra hluthafa Símans hf. Eftir hlutafjárlækkunina á félagið engin bréf í sjálfu sér.
Lækkunin hefur nú verið framkvæmd í Fyrirtækjaskrá og hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð hf.
Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is