Íslandsbanki hf. verður með víxlaútboð þriðjudaginn 16. maí 2017. Boðnir verða út 6 mánaða flokkurinn ISLA 17 1121 og 12 mánaða flokkurinn ISLA 18 0522.
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 16. maí en greiðslu- og uppgjörsdagur er 23. maí 2017.
Nánari upplýsingar veita:
- Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187.
- Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005.