Helstu atriði árshlutareiknings
-
Rekstrartekjur námu 118,8 milljónum USD (11,9 ma.kr.) og hækka um 13,3 milljónir USD (12,6%) frá sama tímabili árið áður .1
-
EBITDA nam 88,3 milljónum USD (8,8 ma.kr.). EBITDA hlutfall er 74,3% af tekjum, en var 77,9% á sama tímabili í fyrra.
-
Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 43,8 milljónum USD (4,4 ma.kr.), en var 37,8 milljónir USD á sama tímabili árið áður og hækkar því um 15,7% milli tímabila.
-
Hagnaður tímabilsins var 49,4 milljónir USD (4,9 ma.kr.) en var 3,4 milljónir USD á sama tímabili árið áður. Tekjuhækkun skýrir hér hluta hækkunar milli tímabila en stærstan þátt á breyting á óinnleystum fjármagnsliðum.
-
Nettó skuldir hækkuðu um 5,3 milljónir USD (0,5 ma.kr.) frá áramótum og voru í lok mars 1.965,8 milljónir USD (196,6 ma.kr.).
- Handbært fé frá rekstri nam 66,3 milljónum USD (6,6 ma.kr.) sem er 3,5% lækkun frá sama tímabili árið áður.
Hörður Arnarson, forstjóri:
„Afkoma fyrsta fjórðungs er vel viðunandi, enda er um að ræða einn tekjuhæsta ársfjórðung í sögu Landsvirkjunar. Þar hjálpaði hækkun álverðs og aukin sala miðað við fyrsta fjórðung ársins 2016, en á móti kom gengisþróun, en íslenska krónan styrktist talsvert á milli ára og óx því kostnaður mældur í Bandaríkjadölum.
Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði, sem Landsvirkjun notar gjarnan sem helsta mælikvarða á rekstur fyrirtækisins, jókst um 16% á milli ára og er með betri ársfjórðungum frá upphafi.“
Nánari upplýsingar veitir:
Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs
s. 515 9000