Viðskiptayfirlit júlí 2017 – Nasdaq Iceland


Reykjavík, 1. ágúst, 2017 – Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.

Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir júlí 2017 eru eftirfarandi:   

Hlutabréf:

  • Heildarviðskipti með hlutabréf í júlí námu 34.827 milljónum eða 1.658 milljónum á dag. Það er 30% lækkun frá fyrri mánuði, en í júní námu viðskipti með hlutabréf 2.355 milljónum á dag.  Þetta er 15% hækkun á milli ára (viðskipti í júlí 2016 námu 1.442 milljónum á dag).
     
  • Mest voru viðskipti með bréf Marel (MARL), 7.760 milljónir, Icelandair Group (ICEAIR), 6.279 milljónir, Eimskipafélagsins (EIM), 3.904 milljónir, Haga (HAGA), 3.137 milljónir, og N1 (N1), 2.406 milljónir.
     
  • Úrvalsvísitalan (OMXI8) hækkaði um 1,7% á milli mánaða og stendur nú í 1.792 stigum.
     
  • Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki með mestu hlutdeildina, 26,3% (25,7% á árinu), Fossar markaðir með 17,5% (13,9% á árinu), og Landsbankinn með 14,7% (20,5% á árinu).
     
  • Í lok júlí voru hlutabréf 20 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi. Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 1.080 milljörðum króna (samanborið við 1.058 milljarða í júní).

 

Skuldabréf:

  • Heildarviðskipti með skuldabréf námu 59,9 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 2,9 milljarða veltu á dag. Þetta er 48% lækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í júní námu 5,5 milljörðum á dag), og 27% lækkun frá fyrra ári (viðskipti í júlí 2016 námu 3,9 milljörðum á dag).
     
  • Alls námu viðskipti með ríkisbréf 43,9 milljörðum, viðskipti með bankabréf námu 11,7 milljörðum, og viðskipti með íbúðabréf námu 2,0 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 19 0226, 8,6 milljarðar, RIKB 28 1115, 8,4 milljarðar, RIKB 20 0205, 6,1 milljarður, RIKB 31 0124, 5,2 milljarðar og RIKB 22 1026, 4,9 milljarðar.
     
  • Á skuldabréfamarkaði var Landsbankinn  með mestu hlutdeildina 23,2% (16,9% á árinu), Arion banki með 20,4% (16,4% á árinu), og Íslandsbanki með 17,1% (17,9% á árinu).
     
  • Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 0,5% í júlí og stendur í 1.325 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) lækkaði um 0,3% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 0,9%.                        

           

Sjá myndir í viðhengi fyrir hlutdeild kauphallaraðila á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði.

 

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

 

 

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi á alþjóðavísu í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 89 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,800 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 11 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

 

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

 

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm.

         FJÖLMIÐLAR
          Kristín Jóhannsdóttir
          868 9836
          kristin.johannsdottir@nasdaq.com


Attachments

Hlutd myndir 201707.xlsx 2017_0801_Viðskiptayfirlit fyrir júlí 2017.pdf
GlobeNewswire