Fagfjárfestasjóðurinn ÍSH sem er í rekstri Rekstrarfélags Virðingar hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2016.
-
Hagnaður af rekstri sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins nam 39 þúsundum króna samkvæmt rekstrarreikningi.
-
Hrein eign sjóðsins nam 834 þúsundum króna samkvæmt efnahagsreikningi.
- Árshlutareikningurinn var kannaður af Rýni endurskoðun ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Í áritun endurskoðenda vegna könnunar kemur fram að ekkert bendi til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, efnahagi hans 30. júní 2017 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga og settar reikningsskilareglur.
Nánari upplýsingar um árshlutareikning Fagfjárfestasjóðsins ORK veitir starfsfólk Rekstrarfélags Virðingar í síma 5856500.