Fagfjárfestasjóðurinn ÍSH sem var í rekstri Rekstrarfélags Virðingar hf. árið 2017 gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2016.
-
Hagnaður af rekstri sjóðsins nam 79 þúsundum króna samkvæmt rekstrarreikningi á árinu 2017.
-
Hrein eign sjóðsins nam 874 þúsundum króna samkvæmt efnahagsreikningi.
- Ársreikningurinn var endurskoðaður af Rýni endurskoðun ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2017, efnahag hans 31. desember 2017 og breytingu á hreinni eign á árinu 2017, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða og að skýrsla stjórnar hafi að geyma þær upplýsingar, komi þær ekki fram annars staðar í ársreikningnum, sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga.
Nánari upplýsingar um ársreikning Fagfjárfestasjóðsins ÍSH veitir starfsfólk Rekstrarfélags Virðingar í síma 5856500.