Afkoma Lykils fjármögnunar hf. á árinu 2017
Stjórn Lykils fjármögnunar hf. samþykkti ársreikning fyrir rekstrarárið 2017 þann 15. febrúar 2018.
Helstu lykiltölur ársreikningsins eru:
Heildar tekjur voru 2.616 m.kr. og hækkuðu um 9% frá fyrra ári.
Hreinar vaxtatekjur á tímabilinu voru 1.319 m.kr. sem er 8,5% lækkun frá árinu 2016, en um 2,2% hækkun ef tekið er tillit til einskiptisliða s.s. dráttarvaxta.
Rekstrarkostnaður var 1.086 m.kr. og lækkar um 4,1% frá fyrra ári. Ef tekið er tillit einskiptisliðar á árinu 2016 nemur lækkunin 9,5% á milli ára.
Hrein virðisbreyting var jákvæð um 604 m.kr. sem er 17,2% lækkun frá fyrra ári.
Hagnaður ársins var 2.067 m.kr. sem er 51,9% hækkun milli ára, en þar af var tekjuskattsinneign að fjárhæð 991 m.kr. tekjufærð á tímabilinu en áætlanir félagsins til næstu ára gera ráð fyrir að félagið geti nýtt inneignina á móti skattskyldum hagnaði.
Arðsemi eigin fjár var 16,4%.
Heildareignir í lok tímabilsins voru 31.778 m.kr. og jukust um 5.816 m.kr., eða 22,4%
Eigið fé í lok árs var 13.323 m.kr.
Reiknað eiginfjárhlutfall (CAD) er 46,6%.
Með hliðsjón af sterkri fjárhagsstöðu félagsins leggur stjórn til við hluthafafund að greiddur verði arður sem nemur 940 m.kr.
Frekari upplýsingar um félagið má finna á eftirfarandi slóð:
https://www.lykill.is/starfsemi/fjarfestatengsl/
Attachments:http://www.globenewswire.com/NewsRoom/AttachmentNg/6caa14fb-1f02-4075-874f-c31244a95008