Meðfylgjandi eru niðurstöður frá aðalfundi Símans hf. sem haldinn var fyrr í dag ásamt samþykktum félagsins.
Sjálfkjörið var í stjórn félagsins fyrir næsta starfsár. Stjórnin hefur skipt með sér verkum og er þannig skipuð:
- Bertrand B. Kan, formaður stjórnar
- Helga Valfells, varaformaður stjórnar
- Birgir Sveinn Bjarnason
- Ksenia Nekrasova
- Sylvía Kristín Ólafsdóttir
Niðurstöður aðalfundarins má að öðru leyti sjá í meðfylgjandi viðhengi.
Ársskýrsla Símans hf. fyrir árið 2017 hefur verið gefin út. Skýrslan er eingöngu gefin út í vefútgáfu.
Skýrsluna má nálgast á heimasíðu félagsins á vefslóðinni: https://www.siminn.is/arsskyrsla-2017