logo.jpg
Source: Icelandair Group hf.

Birting uppgjörs 1. ársfjórðungs 2018

Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2018, mánudaginn 30. apríl 2018. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn miðvikudaginn 2. maí 2018 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group og Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, munu kynna afkomuna og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum félagsins. Kynningin hefst kl. 08:30 og verður í sal 2. Morgunverður í boði frá kl. 8:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.

Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni:
http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast-next/