Reykjavík, 7. maí, 2018 -- Nasdaq Iceland (Nasdaq:NDAQ) “Kauphöllin” hefur gefið út skýrslu um þau skref sem taka þarf á íslenskum hlutabréfamarkaði til að hann geti þjónað fyrirtækjum og atvinnulífi sem best. Kauphöllin hefur skilgreint fjögur sérstaklega mikilvæg atriði sem geta skipt töluverðu máli fyrir öflugri uppbyggingu á hlutabréfamarkaðnum og geta leikið mikilvægt hlutverk í því að styðja við vöxt og framgang fyrirtækja og fjárfesta. Lausnir að aukinni fræðslu til almennings, aðkomu fleiri fjárfesta, skattaívilnana til hlutabréfakaupa og eflingu þekkingar um kosti markaðarins á meðal fyrirtækja og tengdra aðila eins og fyrirtækjaráðgjafa, eru atriði sem þarf að vinna skipulega að. Hugsa þarf hlutabréfamarkaðinn upp á nýtt og skapa betra vistkerfi á honum. Kallað er eftir samstarfi við breiðan hóp hagsmunaðila; stjórnvalda, fjármálafyrirtækja, fjárfesta, markaðsaðila og fleiri.
Skilvirkur fjármálamarkaður einkennist ekki síst af virkum hlutabréfamarkaði, þar sem fjármagni er úthlutað þangað sem það nýtist best. Með öflugum hlutabréfamarkaði er fyrirtækjum gert kleift að sækja sér áhættufjármagn í krafti gagnsæis og jafnræðis meðal fjárfesta, til þess að fjármagna spennandi verkefni, nýsköpun og vöxt í efnahagslífinu. Aðgangur að slíku fjármagni getur skipt smærri fyrirtæki sérstaklega miklu máli. Kauphöllin hefur lengi litið til uppgangs hlutabréfamarkaðarins í Svíþjóð sem sýnir glögglega að það er hægt að byggja upp öflugan vettvang fyrir smærri fyrirtæki og hann sýnir einnig mikilvægi þess fyrir þjóðarhag. Svíum hefur tekist markvisst að beina fjármagni í farveg til smærri fyrirtækja og hafa þannig í raun brúað það bil sem oft verður hjá fyrirtækjum sem þurfa lyftistöng til að komast á næsta stig vaxtar. Þeir hafa skapað gott vistkerfi í kringum markaðinn. Samspil margra þátta er nauðsynlegt til að svona þróun geti orðið hér á landi. Við þurfum að sjá hlutverk hlutbréfamarkaðarins í víðara samhengi og því er kallað eftir samstarfi um uppbyggingu slíks umhverfis hér á landi til lengri tíma.
Sprotafyrirtæki og önnur smá og millistór fyrirtæki (SMEs) eru drifkraftur hagvaxtar og atvinnusköpunar. Tvö af hverjum þremur nýjum störfum sem urðu til á árinu 2015 innan Evrópusambandsins mátti rekja til smárra og millistórra fyrirtækja, sem stóðu einnig að baki yfir 57% af verðmætasköpun samfélagsins.1 Þetta er ein meginástæða þess að fjármálamarkaðir þurfa að vera sniðnir að þörfum smárra og millistórra fyrirtækja, en hér á landi hefur þessu verið ábótavant.
Skýrsluna Hugsum hlutabréfamarkaðinn upp á nýtt má finna á meðfylgjandi vefsíðu og í viðhengi.
#
Um Nasdaq
Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi á alþjóðavísu í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 90 mörkuðum í 50 löndum og knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,900 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 12 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/
Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur
Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.
Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm.
Fjölmiðlar:
Kristín Jóhannsdóttir
kristin.johannsdottir@nasdaq.com
8689836