Icelandair Group hefur söluferli á hótelrekstri og tengdum eignum


Icelandair Group hefur ákveðið að hefja söluferli á Icelandair Hotels og fasteignum sem tilheyra hótelrekstri.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group: „Við kynntum nýtt skipulag í upphafi ársins þar sem við skiptum starfsemi félagsins í tvennt; annars vegar alþjóðaflugstarfsemi og hins vegar fjárfestingar í flugstarfsemi og ferðaþjónustu. Við stígum nú næsta skref og höfum ákveðið að hefja ferli sem miðar að því að selja meirihluta í hótelfélagi okkar; Icelandair Hotels. Við horfum með sama hætti á þær fasteignir sem tilheyra þessum rekstri. Icelandair Hotels er í fremstu röð á Íslandi, hefur sterka markaðsstöðu, er vel rekið og með frábært starfsfólk. Við höfum fundið fyrir miklum áhuga á félaginu að undanförnu, bæði frá innlendum og erlendum aðilum. Markmið okkar með þessari breytingu er að skerpa enn frekar á kjarnastarfsemi okkar, alþjóðaflugstarfseminni. Þar ætlum við að fjárfesta í frekari vexti félagsins, í stafrænum lausnum, aukinni sjálfvirkni og nýjum flugvélum.“

Við ferlið verður horft til þess að hámarka virði eignanna á sama tíma og horft verður til hagsmuna íslenskrar ferðaþjónustu, starfsmanna og annarra hagsmunaaðila.

Icelandair hótel rekur 13 hótel: Reykjavík Natura, Reykjavík Marina, Hilton Reykjavík Nordica, Canopy Reykjavik | City Centre, Reykjavík Konsúlat Hótel og Hótel Alda. Á landsbyggðinni eru Icelandair hótel á Akureyri, við Mývatn og á Héraði. Einnig eru sérleyfishótel á Flúðum, Klaustri, Hamri og í Vík. Icelandair hótel reka einnig sumarhótelkeðjuna Hótel Eddu, með tíu hótel um land allt. Um er að ræða alls 1.937 herbergi á landinu öllu, 876 í Reykjavík og 450 herbergi á landsbyggðinni í rekstri allt árið en þar að auki 611 Eddu hótelherbergi í sumarrekstri. Þá stefna Icelandair Hotels að opnun nýs hótels við Austurvöll í samstarfi við Hilton árið 2019.

Samhliða ákvörðun um að setja Icelandair Hotels í söluferli hefur verið ákveðið að Iceland Travel  og VITA verði hluti af kjarnastarfsemi Icelandair Group. Tilgangur þess er að styrkja enn frekar sölustarfsemi á pakkaferðum og tengdum þjónustuþáttum innan Icelandair Group.

Frekari upplýsingar:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801