Heimavellir birtir uppgjör sitt fyrir 1. ársfjórðung 2018 eftir lokun markaða miðvikudaginn 30. maí næstkomandi.
Opinn kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 31. maí 2018 í fundarherbergi D á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.
Guðbrandur Sigurðsson framkvæmdastjóri Heimavalla mun kynna afkomu félagsins og svara spurningum.
Fundurinn hefst kl: 08:30. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Heimavalla: https://www.heimavellir.is/is/fyrir-fjarfesta/afkoma-og-tilkynningar