Veðskuld slhf. – Innborgun á höfuðstól


Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu VEDS2 17 01 hefur útgefandi ákveðið að nýta sér heimild til að greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins á næsta vaxtagjalddaga sem er þann 15. júní næstkomandi. Útgefandi mun því föstudaginn 15. júní 2018 greiða alls 300.000.000,- króna inn á höfuðstól bréfsins. Greiðslan er tilkomin vegna afborgana og uppgreiðslu á skuldabréfum í eigu útgefanda síðustu vikur og mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Júpiter rekstrarfélag hf. sem er rekstraraðili útgefanda í síma 522 0010.