Í 22. viku 2018 keypti Síminn hf. 30.000.000 eigin hluti að kaupverði 132.075.000 kr. samkvæmt sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
28.5.2018 | 09:44 | 7.500.000 | 4,4 | 33.000.000 | 164.582.637 |
29.5.2018 | 09:35 | 7.500.000 | 4,4 | 33.000.000 | 172.082.637 |
30.5.2018 | 09:33 | 7.500.000 | 4,4 | 33.000.000 | 179.582.637 |
1.6.2018 | 13:48 | 7.500.000 | 4,41 | 33.075.000 | 187.082.637 |
30.000.000 | 132.075.000 |
Síminn átti 157.082.637 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 187.082.637 eigin hluti eða sem nemur 2,02% af útgefnum hlutum í félaginu.
Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 20. apríl 2018.
Síminn hefur keypt samtals 184.500.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,99% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 815.287.500 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 1.242,4 milljónum króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2019, en þó aldrei lengur en til 15. mars 2019 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.
Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is