Landsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum; LBANK 181112, LBANK 181210 og LBANK 190611.
Heildartilboð í útboðinu voru 11 talsins og námu samtals 1.240 m. kr.
Þrjú tilboð að fjárhæð 300 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 181112 og voru vextir tilboða á bilinu 4,28%-4,35%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.
Sjö tilboð að fjárhæð 840 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 181210 og voru vextir tilboða á bilinu 4,28%-4,35%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.
Eitt tilboð að fjárhæð 100 m. kr. barst í flokkinn LBANK 190611 og voru vextir þess tilboðs 4,55%. Því tilboði var ekki tekið.
Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar.