Fjöldi farþega Icelandair í maí nam 367 þúsund og fjölgaði þeim um 10% miðað við maí á síðasta ári. Framboð jókst um 15%. Sætanýting var 77,7% samanborið við 81,2% í maí í fyrra. Farþegar Air Iceland Connect voru um 27 þúsund og fækkaði um 7% á milli ára. Um miðjan maí hætti félagið flugi til Belfast og Aberdeen og einnig á milli Keflavíkur og Akureyrar og skýrir það fækkunina milli ára. Sætanýting nam 62,0%. Fjöldi seldra blokktíma í leiguflugi jókst mikið eða um 40% á milli ára. Skýrist það af fleiri langtímaverkefnum en á sama tíma á síðasta ári. Fraktflutningar jukust um 11% á milli ára. Framboðnar gistinætur hjá hótelum félagsins jukust um 6% á milli ára. Skýrist það að mestu leyti af opnun Reykjavík Konsúlat hótelsins í miðbæ Reykjavíkur í mars síðastliðnum. Herbergjanýting var 72,8% samanborið við 77,0% í maí 2017.
ICELANDAIR | MAÍ 18 | MAÍ 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 367.530 | 333.090 | 10% | 1.295.385 | 1.262.927 | 3% |
Sætanýting | 77,7% | 81,2% | -3,6 ppt | 77,0% | 79,5% | -2,5 ppt |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 1.491,1 | 1.292,0 | 15% | 5.246,5 | 4.863,5 | 8% |
Seldir sætiskm. (RPK'000,000) | 1.158,5 | 1.049,7 | 10% | 4.037,6 | 3.865,9 | 4% |
Meðal flugleið (KM) | 3.200 | 3.086 | 4% | 3.117 | 3.031 | 3% |
AIR ICELAND CONNECT | MAÍ 18 | MAÍ 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 27.434 | 29.470 | -7% | 127.468 | 127.383 | 0% |
Sætanýting | 62,0% | 67,9% | -5,9 ppt | 60,5% | 64,9% | -4,3 ppt |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 15,4 | 15,4 | 0% | 77,1 | 69,4 | 11% |
LEIGUFLUG | MAÍ 18 | MAÍ 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 100,0% | 100,0% | 0,0 ppt | 100,0% | 95,5% | 4,5 ppt |
Seldir blokktímar | 2.863 | 2.046 | 40% | 14.692 | 10.186 | 44% |
FRAKTFLUTNINGAR | MAÍ 18 | MAÍ 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 10.663 | 9.632 | 11% | 50.563 | 43.317 | 17% |
HÓTEL | MAÍ 18 | MAÍ 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 30.149 | 28.567 | 6% | 138.294 | 136.207 | 2% |
Seldar gistinætur | 21.954 | 21.994 | 0% | 103.725 | 106.259 | -2% |
Herbergjanýting | 72,8% | 77,0% | -4,2 ppt | 75,0% | 78,0% | -3,0 ppt |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010