HS Veitur 13 01: Fundur eigenda skuldabréfa í skuldabréfaflokknum HSVE 13 01


Vísað er til fyrri tilkynningar HS Veitna dags. 29. maí sl. um fund skuldabréfaeigenda HSVE 13 01. Fundurinn verður haldinn á morgun, þriðjudaginn 12. júní, klukkan 9:00 í höfuðstöðvum Íslandsbanka í Norðurturni, 9. hæð, Hagasmára 3, 201 Kópavogi.

Skráning fundargesta, afhending atkvæðisseðla og annarra fundargagna verður á fundarstað frá klukkan 8:30.

Tillögur HS Veitna fyrir fundinn og umboðseyðublað er að finna í viðhengi.

Frekari upplýsingar veita:

Júlíus J. Jónsson, forstjóri HS Veitna, s. 860 5208


Attachments


Attachments

HSVE 13 01 - Umboðseyðublað HSVE 13 01 - Tillögur fyrir fund skuldabréfaeigenda

Recommended Reading