Icelandair Group hf. hefur gert nýja samninga um viðskiptavakt með hlutabréf félagsins í samræmi við 116. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti við Íslandsbanka hf., Kviku banka hf. og Landsbankann hf. Samningarnir taka gildi frá og með 2. júlí nk. þannig að síðasti dagur viðskiptavaktar samkvæmt núverandi samningum verður því 29. júní nk. Meginatriði samninganna eru eftirtalin:
Íslandsbanki | Kvika banki | Landsbankinn | |
Lágmarksfjárhæð kaup- og sölutilboða að nafnvirði | 1.000.000 | 1.000.000 | 1.000.000 |
Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern að markaðsvirði | 300.000.000 | 300.000.000 | 300.000.000 |
Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum | 1,5% | 1,5% | 1,5% |
Hámarksfrávik frá síðasta viðskiptaverði | 3% | 3% | 3% |
Frestur til að endurnýja tilboð sem hefur verið tekið að fullu | 10 mínútur | 10 mínútur | 10 mínútur |
Frekari upplýsingar:
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála
bogi@icelandairgroup.is
665 8801