logo.jpg
Source: Icelandair Group hf.

Nýir samningar við viðskiptavaka

Icelandair Group hf. hefur gert nýja samninga um viðskiptavakt með hlutabréf félagsins í samræmi við 116. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti við Íslandsbanka hf., Kviku banka hf. og Landsbankann hf. Samningarnir taka gildi frá og með 2. júlí nk. þannig að síðasti dagur viðskiptavaktar samkvæmt núverandi samningum verður því 29. júní nk. Meginatriði samninganna eru eftirtalin:

 ÍslandsbankiKvika bankiLandsbankinn
Lágmarksfjárhæð kaup- og sölutilboða að nafnvirði1.000.0001.000.0001.000.000
Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern að markaðsvirði300.000.000300.000.000300.000.000
Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum1,5%1,5%1,5%
Hámarksfrávik frá síðasta viðskiptaverði3%3%3%
Frestur til að endurnýja tilboð sem hefur verið tekið að fullu10 mínútur10 mínútur10 mínútur

Frekari upplýsingar:
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála
bogi@icelandairgroup.is
665 8801