VÍS: Endanleg dagskrá hluthafafundar Vátryggingafélags Íslands hf. hinn 27. júní 2018


Hluthafafundur VÍS verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins í Ármúla 3, Reykjavík, miðvikudaginn 27. júní n.k. og hefst fundurinn kl. 16:00. 

Engar breytingatillögur við áður auglýsta dagskrá fundarins bárust innan tilskilins frests og er því endanleg dagskrá fundarins og tillögur óbreyttar frá því sem fram kom í fundarboði, dags. 30. maí s.l.

Endanleg dagskrá fundarins:

  1. Tillaga að stefnu um fjármagnsskipan félagsins.
  2. Tillaga að lækkun hlutafjár með greiðslu til hluthafa að fjárhæð kr. 1.800.000.000 með afhendingu hlutabréfa í Kviku banka hf.
  3. Önnur mál löglega upp borin.

Meðfylgjandi er endanleg dagskrá hluthafafundar VÍS hinn 27. júní n.k. ásamt ályktunartillögum stjórnar og greinargerð.

Nánari upplýsingar veitir Andri Ólafsson samskiptastjóri í síma 660-5105 og í tölvupóstfanginu fjarfestatengsl@vis.is.

Viðhengi


Attachments

Hluthafafundur VÍS 27 júní 2018 - endanleg dagskrá og tillögur