Fjöldi farþega Icelandair í júní nam 480 þúsund og fækkaði þeim um 2% miðað við júní á síðasta ári. Framboðnir sætiskílómetrar (ASK) jukust um 2%, en framboðnum sætum fækkaði um 4% á milli ára. Skýrist munurinn af því að með auknu framboði til N-Ameríku hefur meðalfluglengd í km aukist milli ára, eða sem nemur 6%. Sætanýting var 84,4% samanborið við við 85,7% í júní á síðasta ári. Fjöldi farþega á heimamarkaðinum frá Íslandi jókst töluvert á milli ára, en dróst saman á N-Atlantshafsmarkaðinum og ferðamannamarkaðinum til Íslands.
Farþegar Air Iceland Connect voru um 29 þúsund og fækkaði um 13% á milli ára. Um miðjan maí í ár hætti félagið flugi til Belfast og Aberdeen og einnig á milli Keflavíkur og Akureyrar og skýrir það fækkunina milli ára. Sætanýting nam 69,6% og jókst um 2,8 prósentustig á milli ára. Fjöldi seldra blokktíma í leiguflugi jókst um 21% á milli ára. Skýrist það af fleiri langtímaverkefnum en á sama tíma á síðasta ári. Fraktflutningar drógust saman um 5% á milli ára. Framboðnar gistinætur hjá hótelum félagsins jukust um 2% á milli ára. Herbergjanýting var 79,6% samanborið við 80,0% í júní 2017.
ICELANDAIR | JÚN 18 | JÚN 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 480.468 | 489.408 | -2% | 1.775.853 | 1.752.335 | 1% |
Sætanýting | 84,4% | 85,7% | -1,4 %-stig | 78,9% | 81,2% | -2,3 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 1.821,4 | 1.790,0 | 2% | 7.067,9 | 6.653,5 | 6% |
Seldir sætiskm. (RPK'000,000) | 1.536,7 | 1.534,3 | 0% | 5.574,2 | 5.400,2 | 3% |
Meðal flugleið (KM) | 3.260 | 3.086 | 6% | 3.153 | 3.046 | 4% |
AIR ICELAND CONNECT | JÚN 18 | JÚN 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 28.997 | 33.145 | -13% | 156.465 | 160.528 | -3% |
Sætanýting | 69,6% | 66,8% | 2,8 %-stig | 62,1% | 65,3% | -3,3 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 15,7 | 21,3 | -26% | 92,9 | 90,7 | 2% |
LEIGUFLUG | JÚN 18 | JÚN 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 81,8% | 100,0% | -18,2 %-stig | 93,8% | 96,2% | -2,4 %-stig |
Seldir blokktímar | 2.992 | 2.476 | 21% | 17.685 | 12.663 | 40% |
FRAKTFLUTNINGAR | JÚN 18 | JÚN 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 10.280 | 10.773 | -5% | 60.843 | 54.226 | 12% |
HÓTEL | JÚN 18 | JÚN 17 | BR. (%) | ÁTÞ 18 | ÁTÞ 17 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 41.210 | 40.226 | 2% | 179.504 | 176.433 | 2% |
Seldar gistinætur | 32.814 | 32.162 | 2% | 136.539 | 138.421 | -1% |
Herbergjanýting | 79,6% | 80,0% | -0,3 %-stig | 76,1% | 78,5% | -2,4%-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010