Birting uppgjörs 2. ársfjórðungs 2018


Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung ársins 2018, þriðjudaginn 31. júlí 2018. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn miðvikudaginn 1. ágúst 2018 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group og Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, munu kynna afkomuna og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum félagsins. Kynningin hefst kl. 08:30 og verður í sal 2. Morgunverður í boði frá kl. 8:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.

Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni:
http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast-next/