Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing – Innborgun á höfuðstól VEDS1 14 01


Með vísan til skilmála og verðbréfalýsingar VEDS1 14 01 hefur Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing (sjóðurinn) ákveðið að nýta sér heimild til að greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins á næsta vaxtagjalddaga, sem er þann 15. ágúst næstkomandi. Sjóðurinn mun því miðvikudaginn 15. ágúst 2018 greiða alls kr. 250.000.000,- (tvö hundruð og fimmtíu milljónir króna) inn á höfuðstól bréfsins. Greiðslan er til komin vegna afborgana af og uppgreiðslu á skuldabréfum í eigu sjóðsins síðustu vikur og mánuði.


Nánari upplýsingar veitir Júpíter rekstrarfélag hf., sem er rekstraraðili sjóðsins, í síma 522 0010.