Reykjavík, miðvikudagur, 1. ágúst, 2018 -- Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir júlí 2018 eru eftirfarandi:
Hlutabréf:
- Heildarviðskipti með hlutabréf í júlí námu 35.406 milljónum eða 1.609 milljónum á dag. Það er 1% hækkun frá fyrri mánuði, en í júní námu viðskipti með hlutabréf 1.588 milljónum á dag. Þetta er 3% lækkun á milli ára (viðskipti í júlí 2017 námu 1.658 milljónum á dag).
- Mest voru viðskipti með bréf Eimskipafélags Íslands (EIM), 12.061 milljón, Marel (MARL), 5.552 milljónir, Icelandair Group (ICEAIR), 2.724 milljónir, N1 (N1), 2.111 milljónir, og HB Granda (GRND), 1.903 milljónir.
- Úrvalsvísitalan (OMXI8) lækkaði um 7,0% á milli mánaða og stendur nú í 1.596 stigum.
- Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar voru Fossar markaðir með mestu hlutdeildina, 34,9% (10,8% á árinu), Íslandsbanki með 19,1% (14,3% á árinu), og Landsbankinn með 16,1% (20,8% á árinu).
- Í lok júlí voru hlutabréf 23 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi. Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 991 milljarði króna (samanborið við 1.040 milljarða í júní).
Skuldabréf:
- Heildarviðskipti með skuldabréf námu 69,3 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 3,2 milljarða veltu á dag. Þetta er 5% hækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í júní námu 3,0 milljörðum á dag), og 10% hækkun frá fyrra ári (viðskipti í júlí 2017 námu 2,9 milljörðum á dag).
- Alls námu viðskipti með ríkisbréf 46,4 milljörðum, viðskipti með bankabréf námu 10,4 milljörðum, og viðskipti með íbúðabréf námu 5,1 milljarði. Mest voru viðskipti með RIKB 31 0124, 7,7 milljarðar, RIKB 28 1115, 7,3 milljarðar, RIKB 25 0612, 6,3 milljarðar, RIKB 20 0205, 5,8 milljarðar, og RIKS 21 0414, 5,2 milljarðar.
- Á skuldabréfamarkaði var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina 17,8% (16,2% á árinu), Landsbankinn með 17,3% (17,1% á árinu), og Arion banki með 16,0% (14,9% á árinu).
- Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 1,0% í júlí og stendur í 1.394 stigum. Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) lækkaði um 0,1% en sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 1,5%.
Sjá myndir í viðhengi fyrir hlutdeild kauphallaraðila á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði.
Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics
#
Um Nasdaq
Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi á alþjóðavísu í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 90 mörkuðum í 50 löndum og knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,900 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 13 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/
Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur
Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.
Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm.
Fjölmiðlar:
Kristín Jóhanns
kristin.johannsdottir@nasdaq.com
s. 8689836